Laust starf: lektor við Sálfræðideild

Leitað er að sérfræðingum á öllum sviðum sálfræðinnar, en þó sérstaklega á sviðum klínískrar sálfræði, vinnu- og skipulagssálfræði, persónuleikasálfræði, hugfræði og tölfræði og megindlegrar aðferðafræði. Umsækjendur skulu vera með sterkan grunn í aðferðafræði rannsókna.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. desember 2025. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar. Þá kemur til greina að semja um lægra starfshlutfall við umsækjendur sem óska eftir að sinna klínísku hlutastarfi eða annarri vinnu utan háskólans.

Helstu verkefni eru kennsla í grunnnámi og/eða meistaranámi og rannsóknir við Háskólann á Akureyri á fyrrgreindum sviðum sálfræðinnar. Næsti yfirmaður er forseti Sálfræðideildar. Æskilegast er að starfsstöð verði á Akureyri, en fjarvinnufyrirkomulag verður tekið til athugunar, ef þess er óskað í umsókn.

Allt grunnnám í sálfræði er kennt í sveigjanlegu námi. Við Sálfræðideild háskólans eru um tæplega 300 stúdentar í grunn- og meistaranámi. Deildin er hluti af Hug- og félagsvísindasviði skólans. Við Sálfræðideild eru meðal annars stundaðar rannsóknir á sviðum taugavísinda, íþróttasálfræði, hugfræði, þroskasálfræði, skynjunarsálfræði, atferlisgreiningar, félagssálfræði, sálmælinga og unglingarannsókna, auk þverfræðilegra rannsókna innan Háskólans á Akureyri og í alþjóðlegu samstarfi. Við deildina starfa 8 akademískir starfsmenn, auk fjölda stundakennara.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla
  • Kennslureynsla á háskólastigi og reynsla af vísindastörfum eru nauðsynleg
  • Umsækjandi skal sýna fram á hæfni til að kenna og stunda rannsóknir á einhverju af ofan töldum sviðum sálfræðinnar. Þekking á öðrum sviðum sálfræði er einnig æskileg
  • Starfsleyfi sálfræðings, útgefið af embætti landlæknis er kostur
  • Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni
  • Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir kennslu- og rannsóknaþarfir Sálfræðideildar
  • Gott vald á íslensku er nauðsynlegt og að umsækjandi uppfylli skilyrði í samræmi við málstefnu skólans á starfstíma
  • Góð enskukunnátta er nauðsynleg

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu
  • Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku
  • Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kemur
  • Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á
  • Óskir um fyrirkomulag starfsstöðvar, ef umsækjandi hyggst starfa utan Akureyrar
  • Óskir um starfshlutfall, ef lægra en 100%
  • Tilnefna skal þrjá meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda
  • Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins

Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2025

Laun eru skv. kjarasamningi Félags háskólakennara á Akureyri og fjármálaráðherra.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar gefur Dr. Richard Tähtinen, forseti Sálfræðideildar, á netfanginu richard@unak.is.