Laust starf: Sérfræðingur við rannsóknir

RHA - Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf sérfræðings við rannsóknir.

RHA er sjálfstæð eining innan Háskólans á Akureyri sem aflar sér einkum tekna með rannsóknaverkefnum og ráðgjöf fyrir ýmsa aðila innanlands sem utan. Hlutverk RHA er að efla rannsóknastarfsemi við Háskólann á Akureyri og styrkja tengsl hans við atvinnulífið. Einnig að vinna að þróun nýrra verkefna innan háskólans og koma þeim í réttan farveg. Sjá nánar á www.rha.is.

Helstu verkefni og ábyrgð

Auglýst er eftir sérfræðingi til rannsókna- og ráðgjafastarfa. Starfið felur í sér vinnu við rannsóknir á sviði félagsvísinda- og samfélagsrannsókna auk annars sem til fellur. Næsti yfirmaður er forstöðumaður RHA. Starfið er laust frá 1. janúar 2025.

Hæfniskröfur

  • Meistaragráða í félagsvísindum, landfræði, hagfræði eða öðrum greinum sem nýtast í starfi
  • Doktorspróf er kostur
  • Góð þekking á eigindlegri og megindlegri aðferðafræði, skýrsluskrifum og framsetningu niðurstaðna
  • Reynsla af þátttöku í innlendum og alþjóðlegum rannsóknarverkefnum er skilyrði
  • Góð almenn tölvukunnátta og kunnátta í einu eða fleiri tölfræðiforritum
  • Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Góðir skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi

Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir RHA

Umsókn skal fylgja:

  1. Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil
  2. Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku
  3. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
  4. Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda

Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2024

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. RHA áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar veitir

Arnar Þór Jóhannesson, forstöðumaður RHA - arnar@unak.is - 4608901

Sækja um starf