Fimm hljóta framgang í starfi

Þrjú í stöðu dósents og tvö í stöðu prófessors
Fimm hljóta framgang í starfi

Fimm akademískir starfsmenn Háskólans á Akureyri hljóta framgang í starfi frá 1. júlí næstkomandi.

Akademískt starfsfólk HA getur árlega sótt um framgang í starfi. Mat á umsóknum er í höndum dómnefndar háskólans og byggir mat dómnefndar á heildstæðu faglegu mati á frammistöðu og árangri í rannsóknum, kennslu, stjórnun og þjónustu í þágu háskólans og samfélagsins í samræmi við reglur háskólans þar að lútandi.

Í framhaldi ákveður rektor á grundvelli dómnefndarálits hvort veita skuli framgang í starfi.

Eftirfarandi hljóta framgang í starfi:

Á Heilbrigðis,- viðskipta- og raunvísindasviði:

 

Dr. Deniz Harputlu fær framgang í stöðu dósents í hjúkrunarfræði við Hjúkrunarfræðideild

Á Hug- og félagsvísindasviði:

 

Dr. Elín Díanna Gunnarsdóttir fær framgang í stöðu prófessors í sálfræði við Sálfræðideild

 

Dr. Kristín Margrét Jóhannsdóttir fær framgang í stöðu dósents í málvísindum, íslensku og tungumálakennslu við Kennaradeild

 

Dr. Mehmet Harma fær framgang í stöðu prófessors í sálfræði við Sálfræðideild

 

Dr. Sigríður Margrét Sigurðardóttir fær framgang í stöðu dósents í menntunarfræðum við Kennaradeild

 

Háskólinn á Akureyri óskar þessu starfsfólki innilega til hamingju með framganginn og árangur í starfi!