Nýr þáttur af hlaðvarpinu Forysta & samskipti er kominn í loftið. Rebekka Kristín Garðarsdóttir, forstöðukona og verkefnastjóri hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Wise er gestur þáttarins að þessu sinni.
Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Sigurður Ragnarsson deildarforseti Viðskiptadeildar og stjórnenda- og forystuþjálfari. Rebekka Kristín hefur yfir 20 ára reynslu sem stjórnandi og forystumanneskja. Hún starfar nú hjá Wise en starfaði meðal annars áður í Hong Kong sem stjórnandi hjá LinkedIn og Microsoft, auk þess sem hún stofnaði og rak fyrirtæki þar ytra. Margt kemur til tals, eins og munurinn á að vera stjórnandi og leiðtogi auk þess sem rætt er um verkefnastjórnun. Einnig segir Rebekka Kristín frá tíma sínum hjá LinkedIn og Microsoft og lýsir þar til dæmis einstöku starfsumhverfi þar sem afar mikil krafa var gerð á árangur samhliða að hugað var að vellíðan starfsfólks. Rebekka Kristín ræðir einnig muninn á að vera forystumanneskja í Kína og á Íslandi.