Norræn ráðstefna um hjúkrunarfræðimenntun haldin í HA

Notkun tækni í menntun hjúkrunarnema er þema ráðstefnunnar í ár
Norræn ráðstefna um hjúkrunarfræðimenntun haldin í HA

Sjöunda norræna ráðstefnan fyrir kennara í hjúkrunarfræði (e. Nordic Forum for Nurse Educators 2024) verður haldin af Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviði Háskólans á Akureyri í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri og NORDPLUS MEDICO dagana 11. til 13. nóvember næstkomandi. Ráðstefnan er fyrir kennara, fagfólk og fræðimenn á sviði hjúkrunarmenntunar og kennslu. „Ráðstefnan er vettvangur þar sem hægt er að miðla nýjungum, hugmyndum, reynslu og þróun í hjúkrunarmenntun. Þemað í ár er notkun tækni í menntun hjúkrunarnema,“ segir Þórhalla Sigurðardóttir, aðjúnkt við Hjúkrunarfræðideild og ein skipuleggjenda ráðstefnunnar.

Á ráðstefnunni gefst kjörið tækifæri til bæði starfsþróunar og tengslamyndunar. „Ég hef farið á NFNE ráðstefnu áður og þar gat ég myndað tengsl við samstarfsfólk á mínu sérsviði í hjúkrun. Það er því afar ánægjulegt að fá að halda ráðstefnuna að þessu sinni hér á Akureyri,“ segir Þórhalla.


Þórhalla Sigurðardóttir

Ráðstefnunni verður ekki streymt og vonast skipuleggjendur því til að sjá sem flesta á Akureyri. Kynnt verða mismunandi sjónarhorn í grunn- og framhaldsnámi í hjúkrun, námsumhverfi, kennslufræði og starfsþróun. Gestum mun meðal annars gefast tækifæri á að skoða hermisetrið við Sjúkrahúsið á Akureyri og þann hátæknibúnað sem notaður er við hermikennslu hjúkrunarnema.

Lykilfyrirlesarar

„Við erum sérstaklega ánægðar með lykilfyrirlesarana okkar á ráðstefnunni en þau koma úr ólíkum áttum en eiga það öll sameiginlegt að hafa nýtt tækni á mismunandi hátt til að miðla kennsluefni til nemenda. Fyrirlesararnir koma frá fjórum háskólum. Helena Sigurðardóttir kemur frá Háskólanum á Akureyri en hún er kennsluráðgjafi sem hefur sérhæft sig í upplýsinga- og snjalltækni. Frá Háskóla Íslands kemur Hafsteinn Einarsson dósent en rannsóknir hans fjalla um nýstárlega notkun á gervigreind í menntun. Dr. Katri Manninen kemur frá Karolinska Univerisitet í Stokkhólmi, rannsóknir hennar fjalla um menntun hjúkrunarnema. Hugrún Ösp Egilsdóttir lektor kemur frá University of South-Eastern Norway, hennar sérsvið er hermikennsla hjúkrunarnema,“ segir Þórhalla.

Áhugasöm geta enn skráð sig á ráðstefnuna hér. Bendum við á að mörg stéttarfélög veita styrki til þátttöku á ráðstefnum sem þessum.