Opinn dagur

Kynntu þér námsúrvalið við HA frá fyrstu hendi!

Öll velkomin á Opinn dag í Háskólanum á Akureyri miðvikudaginn 6. nóvember!

Stúdentar og starfsfólk HA svara öllum þínum spurningum um námið og lífið í HA.

  • Hvaða nám er í boði? 
  • Hvaða möguleikar eru að námi loknu?
  • Hvernig er félagslífið?
  • Hvað get ég gert með gráðu frá HA?
  • Hvernig virkar þetta sveigjanlega nám?
  • Hvað þarf ég að gera til að fara í skiptinám?

Allar námsleiðir í grunnnámi verða kynntar á sérstökum básum og áhugasöm geta tekið þátt í gönguferð til að kynnast háskólasvæðinu.

Að dagskrá lokinni verður boðið til pizzuveislu.

Við hlökkum til að sjá þig!