Laust starf: Starfsmaður í Kaffi Borg

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa stöðu starfsmanns í Kaffi Borg, mötuneyti HA. Starfið heyrir undir Rekstur fasteigna og næsti yfirmaður er forstöðumaður Reksturs fasteigna. Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri og er um fullt starf að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Matseld og framreiðsla matar með hollustu að leiðarljósi
  • Móttaka og frágangur matvæla í eldhúsi
  • Afgreiðsla þjónustubeiðna er varða fundi og aðra viðburði
  • Sinnir gæðaeftirliti og skráningum
  • Leysir yfirmann Kaffi Borgar af í fjarveru hans

Hæfniskröfur

  • Hæfni í matseld og framreiðslu matar
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku og ensku máli
  • Reynsla sem nýtist í starfi

Umsókn skal fylgja:

  1. Yfirlit yfir náms- og starfsferil.
  2. Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
  3. Tilnefna skal tvo meðmælendur og æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi.

Umsóknarfrestur er til og með 9. septermber 2024

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.

Nánari upplýsingar veitir

Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir, jona@unak.is og sími 460-8023.

Sækja um starf