Opið fyrir umsóknir í heimskautarétti

Einstakt nám á heimsvísu
Opið fyrir umsóknir í heimskautarétti

Nú er búið að opna fyrir umsóknir í heimskautarétti til og með 1. apríl. Innritað er í námið annað hvert ár.

Heimskautaréttur fjallar um þau réttarkerfi sem eru við lýði á Norður- og Suðurheimskautunum. Námið er þverfaglegt með áherslu á viðeigandi svið þjóðaréttar og félagsvísinda. Nám í heimskautarétti snýst um hvernig mönnum, umhverfi og auðlindum er stjórnað á Norðurslóðum og Suðurskautinu. Stúdentar fræðast um alþjóðlegan lagaramma, þar á meðal hafrétt, umhverfisrétt og réttindi frumbyggja. Þeir fá einnig kynningu á þjóðum norðurslóða, meginreglur efnahagsþróunar og góða stjórnarhætti.

Mikið er lagt upp úr alþjóðlegu samstarfi við aðra háskóla í náminu.

Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið BA/BS-gráðu við viðurkennda innlenda eða erlenda háskóla á sambærilegu sviði.

Nánari upplýsingar um námið eru hér

UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 1. APRÍL

Þú getur sótt um hér