Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 100% stöðu lektors við Hjúkrunarfræðideild HA.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að öflugum einstaklingi til að annast kennslu, rannsóknir og stjórnun við Hjúkrunarfræðideild og í framhaldsnámi í þverfræðilegum heilbrigðisvísindum. Næsti yfirmaður er forseti Hjúkrunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri.
Staðan er veitt frá og með 1. ágúst 2025. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við HA. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn. Samkeppnispróf eru haldin við lok fyrsta misseris og ákvarða hverjir fá að halda áfram námi á vormisseri fyrsta árs. Fjöldi nemenda eftir haustmisseri fyrsta árs er u.þ.b. 75 á hverju ári. Fastráðið starfsfólk deildarinnar er tæplega 20 manna metnaðarfullur hópur, samsettur af akademísku starfsfólki, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni bæði í fræðilegu og klínísku námi. Árlega hefja um 150 einstaklingar framhaldsnám í þverfræðilegum heilbrigðisvísindum við HA.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla
- Reynsla af kennslu og rannsóknum á háskólastigi er skilyrði
- Reynsla af leiðbeiningu meistara- og doktorsnema er kostur
- Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, góðrar færni í að miðla þekkingu og skipulagshæfni
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli. Miðað er við að umsækjandi uppfylli skilyrði í samræmi við málstefnu skólans á starfstíma
Umsókn skal fylgja
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu
- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslu
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum, á íslensku eða ensku
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eins og við á
- Tilnefna skal þrjá meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi
- Fræðilegar ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að fimm ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins
Við ráðningu verður miðað við, að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri
Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2025
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga nr. 63/2006 um háskóla, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglna nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglna nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við HA. Ófullnægjandi umsóknir verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Háskólinn á Akureyri hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Nánari upplýsingar veitir
Sigríður Sía Jónsdóttir, Forseti Hjúkrunarfræðideildar, siaj@unak.is, 460-8472.
Sækja um starf