Rachael Lorna Johnstone og Sigrún Sigurðardóttir hljóta Fulbright Arctic styrk

Þrír íslenskir fræðimenn valdir til þátttöku í Fullbright Arctic Initiative IV
Rachael Lorna Johnstone og Sigrún Sigurðardóttir hljóta Fulbright Arctic styrk

Rachael Lorna Johnstone, prófessor og deildarforseti Lagadeildar Háskólans á Akureyri, Sigrún Sigurðardóttir, prófessor við Hjúkrunarfræðideild Háskólans á Akureyri, og Anna Karlsdóttir, lektor við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, hafa verið valdar til þátttöku í Fulbright Arctic Initiative IV (FAI). Þær voru valdar sameiginlega af stjórn Fulbright-stofnunarinnar á Íslandi og stjórn Fulbright í Bandaríkjunum, en FAI er flaggskip Fulbright á sviði Norðurskautsrannsókna.

Þetta er fjórða lota FAI, en markmið áætlunarinnar er að styrkja alþjóðlegt vísindasamstarf á sviði Norðurskautsfræða. FAI stuðlar að þverfaglegu samstarfi þar sem mál tengd Norðurskautssvæðinu eru skoðuð með heildstæðum hætti. Áhersla er lögð á hagnýtar rannsóknir sem nýtast við að leysa sameiginlegar áskoranir. Um er að ræða 18 mánaða verkefni sem hefst haustið 2024 með þátttöku 19 fræði- og vísindamanna frá sjö ríkjum Norðurskautsráðsins. FAI er einstakt tækifæri til alþjóðlegs samstarfs í Norðurskautsrannsóknum, þar sem þátttakendur efla tengslanetið, heimsækja valin Norðurskautssvæði og vinna bæði að einstaklingsrannsóknum og sameiginlegum verkefnum. Í fyrsti tveimur lotum FAI tilnefndi Ísland einn styrkþega, tvo í þriðju lotu, en fær í fjórðu lotu úthlutað þremur sætum. Það er ekki síst vegna fjárframlags sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið veitir sérstaklega til Fulbright stofnunarinnar vegna verkefnisins.

Unnið verður í þremur vinnuhópum sem hafa hver sitt áherslusvið: öryggismál og stjórnsýsla (Arctic Security and Governance), loftlagsbreytingar og auðlindir (Climate Change and Arctic Resources), sem Rachael og Anna munu taka þátt í, og geðheilsa og velferð (Mental Health & Well-Being), sem Sigrún tekur þátt í.

Allir fræðimennirnir þrír hafa lagt mikið af mörkum til háskólasamfélagsins á síðustu árum. Þær hafa víðtæka reynslu af alþjóðlegu rannsóknasamstarfi, hafa setið í fjölmörgum nefndum og eftir þær liggja mörg ritverk á fagsviðum þeirra. Rachael lauk doktorsnámi í lögfræði frá University of Toronto árið 2004. Hún hóf störf við Háskólann á Akureyri árið 2003, og hlaut prófessorsstöðu þar árið 2013, og tók við stöðu deildarforseta Lagadeildar 2022. Rannsóknarverkefni Rachael snýr að réttlátum orkuskiptum á Norðurskautinu, með áherslu á réttindi frumbyggja. Sigrún lauk doktorsnámi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2017. Hún hóf störf við Háskólann á Akureyri 2012 og hlaut prófessorsstöðu þar árið 2023. Rannsókn Sigrúnar fjallar um áföll og streitu í kjölfar misnotkunar og kynbundins ofbeldis, með áherslu á sjálfsvígsforvarnir. Anna lauk doktorsnámi félagsvísindum frá Roskilde University árið 2012, en hefur síðan 2002 verið lektor í í mannvistarlandfræði og ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Í rannsókn sinni skoðar Anna þróun og áhrif komu skemmtiferðaskipa á Norðurslóðir, með tilliti til loftslagsbreytinga og áhrifa á afskekktar strandbyggðir.

Fulbright stofnunin á Íslandi veitir frekari upplýsingar, en hafa má samband við fulbright@fulbright.is.

Frekari upplýsingar um Fulbright Arctic Initiative má finna hér.

Frétt tekin af vef Fulbright