Samtal um gervigreind í háskólasamfélaginu

Siðfræði og heimspeki í brennidepli

Fimmtudaginn 28. nóvember verður haldið málþing í stofu M102 þar sem markmiðið er að ræða gervigreind í háskólasamfélaginu út frá sjónhorni siðfræðinnar og heimspeki menntunar. Einnig verður hægt að fylgjast með málstofunni á Zoom, með því að smella hér.

Málstofustjóri: Helgi Freyr Hafþórsson, Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð HA

Erindi:

  • Að nota gervigreind á siðlegan hátt
    Sigurður Kristinsson, Prófessor við Félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri

  • Gervigreind og menntun: siðferðilegar vangaveltur
    Garðar Ágúst Árnason, Prófessor við Kennaradeild Háskólans á Akureyri

Léttar veitingar verða í boði svo endilega skráðu þig svo hægt sé að panta nóg handa öllum.

Öll velkomin!