Undirbúningur nemenda við upphaf háskólanáms í STEM greinum

SamSTEM hópurinn stendur fyrir málstofu um stöðu nemenda við upphaf háskólanáms í STEM greinum. Verkefnið er samstarfsverkefni HA, HÍ og HR

SamSTEM hópurinn stendur fyrir málstofu um stöðu nemenda í upphafi háskólanáms í STEM greinum mánudaginn 12. ágúst í Veröld, Húsi Vigdísar og í streymi. Verkefnið er samstarfsverkefni HA, HÍ og HR. 

Gestir eru beðnir um að skrá sig hér og merkja við hvort tekið verði þátt á stað eða í fjarfundi.

Dagskrá

09:00-09:10 - Um SamSTEM
Ingunn Gunnarsdóttir

09:10-10:00 - Áhrif styttingar framhaldsnáms á frammistöðu nýnema í Háskóla Íslands
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið HÍ

10:00-10:30 - Kaffihlé

10:30-11:30 - Áhrif styttingar námstíma stúdentsprófsbrauta á inntak brautanna og undirbúning nemenda fyrir nám á háskólastigi
María Jónsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ

11:30-12:00 - Upplifun af stærðfræðikennslu í íslensku og dönsku kerfi - munur á námsefni og námskrá
Anna Hera Björnsdóttir

Fundarstjóri verður Bjarnheiður Kristinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.

Öll velkomin!