Það fór ekki fram hjá neinni manneskju sem stödd var á Húsavík í lok mars sá bylur af hugmyndum sem þyrluðust upp í hugmyndahraðhlaupinu KRUBBI. KRUBBUR er tveggja daga keppni þar sem áhersla er lögð á hugmyndir að lausnum sem tengjast ferðaþjónustu og ímynd Húsavíkur. Fyrirtæki og stofnanir á svæðinu kynntu fyrir þátttakendum raunverulegar áskoranir sem unnið var að lausnum við.
Háskólinn og SSNE eru samstarfsaðilar Hraðsins, miðstöð nýsköpunar á Húsavík, sem stendur fyrir viðburðinum og flutti Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor, ávarp við upphaf hraðhlaupsins. Einnig starfaði Svava Björk, verkefnisstjóri nýsköpunar hjá HA, að skipulagi í hraðhlaupinu, þjálfaði teymi og sat í dómnefnd.
Á sama tíma skrifuðu Áslaug, Óli Halldórsson, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga og Stefán Pétur Sólveigarson, verkefnastjóri Hraðsins undir samstarfssamning. Hraðið er rekið sem hluti af Þekkingarnetinu og eiga þau sitt helsta aðsetur á STÉTTIN sem er samfélag stofnana, fyrirtækja og einstaklinga á Húsavík sem starfa við nýsköpun, rannsóknir, þróun og þekkingarstarfsemi. Með samningnum er lögð áhersla á samnýtingu aðstöðu, húsnæðis og þekkingar á sviði nýsköpunar í þágu frumkvöðla og rannsakenda.
Norðurljósaslóðin hlutskörpust

Þátttakendur í KRUBB fengu kennslu og þjálfun í nýsköpunarhugsun, aðstoð við að mynda teymi, móta hugmyndir og hvatningu til að sýna frumkvæði. Þeir störfuðu í teymum og nýttu innblástur og gögn til að þróa hugmyndir að nýjum lausnum. Alls kynntu fimmtán teymi hugmyndir sínar fyrir dómnefnd sem var endapunktur Krubbsferðalagsins og upphaf verkefnanna í að verða að veruleika.
Sigurvegarar keppninnar voru Eva Björk Káradóttir og Kamil Dąbrowski með hugmyndina Norðurljósaslóð. Hún snýst um upplifun og útivist á dimmasta tíma ársins þar sem útivistarperlur svæðisins opnast fyrir almenningi með sérstakri lýsingu sem minnir á norðurljósin. Þau hlutu í verðlaun ársaðild að Hraðinu ásamt glæsilegum gjafakortum í gistingu og afþreyingu á Húsavík og nágrenni.
Við óskum vinningshöfum, öllum þátttakendum og skipuleggjendum til lukku með framkvæmdina og öll þessi frábæru verkefni. Þá hlökkum við til frekara samstarfs með Þekkingarnetinu og Hraðinu.
Hægt er að lesa meira um Hraðið og KRUBB hér.