Tilhögun Háskólahátíðar 2024

Háskólahátíð - brautskráning kandídata frá Háskólanum á Akureyri fer fram 14. og 15. júní
Tilhögun Háskólahátíðar 2024

Föstudaginn 14. júní verða brautskráðir kandídatar úr námi á framhaldsstigi.

Laugardaginn 15. júní verða brautskráðir kandídatar á grunnstigi í tveimur athöfnum, kl. 10:00 og 14:30.

Skráningar

Nauðsynlegt er að kandídatar skrái þátttöku sína á Háskólahátíð hvort sem þeir ætla að mæta á Háskólahátíð eða ekki:

Helstu tímasetningar

 

Föstudagur 14. júní

kl. 15:00-15:30 Stutt æfing í Hátíðarsal fyrir kandídata í framhaldsnámi
kl. 15:30-15:50 Hópmyndataka fyrir kandídata í framhaldsnámi
kl. 16:00-17:00 Brautskráningarathöfn úr framhaldsnámi í Hátíðarsal
kl. 17:00-17:30 Móttaka með kaffi og sætum bita

kl. 19:00-19:30 Æfing með kandídötum í grunnnámi: Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið
kl. 19:45-20:15 Æfing með kandídötum í grunnnámi: Hug- og félagsvísindasvið

Laugardagur 15. júní

Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið*

kl. 09:00-09:30 Hópmyndataka
kl. 10:00-11:30 Brautskráningarathöfn
kl. 11:30-12:00 Móttaka með kaffi og sætum bita

Hug- og félagsvísindasvið**

kl. 13:30-14:00 Hópmyndataka
kl. 14:30-16:00 Brautskráningarathöfn
kl. 16:00-16:30 Móttaka með kaffi og sætum bita

*Fagnám fyrir sjúkraliða - grunndiplóma, hjúkrunarfræði BS, iðjuþjálfunarfræði BS, líftækni BS, sjávarútvegsfræði BS, viðskiptafræði BS, viðskiptafræði og sjávarútvegsfræði BS, tölvunarfræði BS - samstarf við HR

**Lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn - grunndiplóma, félagsvísindi BA, fjölmiðlafræði BA, lögreglu- og löggæslufræði BA, nútímafræði BA, kennarafræði BEd, lögfræði BA, sálfræði BS

Nánari upplýsingar veitir Sólveig María Árnadóttir (solveigmaria@unak.is) fyrir hönd undirbúningshóps Háskólahátíðar.

Við hlökkum til að gleðjast með þér!