Opnun Jafnréttisdaga 2024
Öll velkomin á opnunarviðburð Jafnréttisdaga 2024
Á þessum viðburði ræða saman tvær stjórnmálakonur með erlendan uppruna, Lenya Rún Taha Karim (hún) og Sanna Magdalena Mörtudóttir (hún), um inngildingu í stjórnmálum á Íslandi í dag.
Meðal umræðuefna verða spurningar um hvernig sé að komast að í stjórnmálum sem manneskja af erlendum uppruna, hverjar séu áskoranirnar, hvort sé stéttaskipting við að komast að í pólitík, hvernig sé hægt að koma betur málefnum fólks af erlendum uppruna að á dagskrá þings og borgar/bæjarstjórna og hvernig gengur að ræða mál tengd stéttaskiptingu þar. Einnig verður rætt um kosningaþátttöku fólks af erlendum uppruna en síðasta vetur beindi umfjöllun Kveiks kastljósinu á afar dræmri þátttöku fólks af erlendum uppruna í sveitarstjórnarkosningum.
Umræðum stjórnar Hulda Þórisdóttir (hún), prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands.
Viðburðurinn verður í beinu streymi á Facebook síðu Jafnréttisdaga og gefst áhorfendum færi á að senda inn spurningar. Viðburðurinn fer fram á íslensku og aðgangur er ókeypis.
Facebook viðburður
Öll velkomin!