3. apríl 2025 kl. 20:00
Rafræn kynning á rannsóknarverkefninu Svefn kvenna
Velkomin á kynningu á rannsóknarverkefninu svefn kvenna
Rannsóknir hafa sýnt að svefnvandamál og sjúkdómar eru mun algengari hjá konum en körlum. Styrkleiki kvenhormónanna, estrógens og prógesteróns, er síbreytilegur yfir tíðahringinn, og hefur verið sýnt fram á að það geti haft áhrif á svefngæði. Flestar rannsóknir sem hafa skoðað áhrif tíðahringsins á svefn hafa stuðst við huglægt mat þátttakenda en ekki mælt með viðurkenndum svefnmælitækjum. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig svefn breytist yfir tíðahringinn hjá ungum konum og bera saman við svefnvanda og líðan þátttakenda.
Kynningin er sérstaklega ætluð áhugasömum konum á aldrinum 18-36 ára sem vilja kynna sér rannsóknina.
Smelltu hér til að tengjast kynningunni á Zoom
Einnig verður haldinn kynningarfundur 3. apríl kl. 12.10 í Háskólanum á Akureyri.
Dagskrá
- Kynning á rannsókninni
- Kynning á mælitækjum sem notuð eru
- Kynning á því hvernig konur geta tekið þátt í rannsókninni
Kynntu þér rannsóknina Svefn kvenna hér
hlökkum til að sjá ykkur!